Færslur: 2012 Febrúar

04.02.2012 12:12

Komin í loftið

Hæ allir! 
Þá er síðan komin aftur í gagnið, ætlum að reyna að vera dugleg að henda hingað inn fréttum og myndum. Það er ansi stórt bil á milli albúmanna þar sem síðan hefur legið niðri í einhver ár.
 
En héðan úr fjallshlíðinni er allt gott að frétta. Við Hjálmar Ingi höfum félagsskap hvort af öðru á daginn, jú og af Kollu auðvitað :)

Hér er þó mjög kalt en stillt. Spáð var allt að -20° í vikunni og við finnum sérstaklega fyrir því á kvöldin, þá er hitað vel upp í kamínunni og svo skiptumst við á með hitablásarann hans Hjálmars Inga, hitum herbergin vel upp. Nú áttar maður sig á því í fyrsta skipti til hvers náttföt eru ... svo verður þetta akkúrat öfugt í sumar ;)

Það var ekki útlit fyrir að Hjálmar Ingi kæmist neitt á næstunni í leikskóla en við fórum í dag í kommúnuna og þar ætla þær að beita sér fyrir því að hann komist inn sem fyrst en það yrði þó aldrei fyrr en hann er kominn með norska kennitölu. Vonandi fáum við pláss í leikskóla hér nærri en hann gæti þess vegna bara fengið pláss í hinum enda bæjarins, sem er ansi langt í burtu því þótt þetta sé fámennur bær þá er hann ansi stór, enda hver lóð stór og nánast öll íbúabyggð í fjallshlíðunum.

En allt upp á við hér annars (jahh nema þegar við förum niður í bæ, þá er það niður á við...svona bókstaflega).



  • 1
Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 39364
Samtals gestir: 12853
Tölur uppfærðar: 15.5.2012 22:20:26